THIS WORKSHOP IS IN ICELANDIC
PRJÓNAFERÐ MEÐ HELGU JÓNU FYRIR ÍSLENSKA PRJÓNARA
Helga Jóna Thórunnardóttir
Date
10. august 2026 at 16:00 - 14. august 2026 at 18:00
Place
Tversted skole Skolevej 11-13, Tversted, 9881 BindslevTeacher
Helga JónaPrice:
805 EUR in a shared room
4 tickets left
4 in stock
Prjónaferð til Tversted með Helgu Jónu
Komdu með í draumaveröld prjónarans, til ISAGER sem er staðsett í Tversted í Danmörku, og upplifðu fimm daga fulla af prjónaskap, náttúru og spennandi prjónasamfélagi.
Helga Jóna leiðbeinir þér í gegnum spennandi prjóntækni, þú lærir um ull í spunaverksmiðjunni Uldens Hus, borinn er fram ljúffengur matur frá skólaeldhúsinu, og þú færð að upplifa fallega náttúru Norður-Jótlands, og fyrir þá morgunhressu er sjósund á hverjum morgni.
Gist er á notalegri gistingu hjá Isager. Kennslan fer fram á íslensku, og innifalið er kennsla, námsgögn (kennsluefni er á dönsku), gisting, fullt fæði og rúta til og frá flugvellinum í Billund.
ÞRIÐJUDAGURINN
KNITTING RETREAT WITH HELGA JÓNA FOR ICELANDIC KNITTERS
MÁNUDAGURINN 10. ÁGÚST
16:35 Brottför frá Keflavík til Billund (Icelandair)
21:45 Brottför með rútu frá Billund flugvelli
00:45 Koma til Tversted Skole og komið sér fyrir í herbergjunum.
ÞRIÐJUDAGURINN 11. ÁGÚST
08:00 Morgunsund við ströndina fyrir þær/þau morgunhressu
09:00 Morgunverður á Café Skolekøkkenet (skólaeldhúsinu)
10:00 Námskeið með Helgu Jónu
12:30 Hádegisverður í Tversted Skole
13:30 Leiðsögn um Tversted Skole og frásögn um ISAGER (Rundvisning om Tversted skole og fortælling om Isager)
14.15 Námskeið með Helgu Jónu
15:30 Kaffi/te
16:00 Gönguferð á ströndina með Helgu Jónu
18:00 Kvöldverður á Café Skolekøkkenet
Eftir kvöldverðinn hægt að eiga notalega prjónastund í Koserummet fyrir þá sem vilja
MIÐVIKUDAGURINN 12. ÁGÚST
08:00 Morgunsund við ströndina fyrir þær/þau morgunhressu
09:00 Morgunverður á Café Skolekøkkenet
10:00 Námskeið með Helgu Jónu
12:30 Hádegisverður í Tversted Skole
13:30-15.30 Námskeið með Helgu Jónu
15:30 Kaffi/te
Verslunin opin einungis fyrir hópinn frá klukkan 17-18:00
18:00 Kvöldverður á Café Skolekøkkenet
Eftir kvöldverðinn hægt að eiga notalega prjónastund í Koserummet fyrir þá sem vilja
FIMMTUDAGURINN 13. ÁGÚST
08:00 Morgunsund við ströndina fyrir þær/þau morgunhressu
09:00 Morgunverður á Café Skolekøkkenet
10:00 Námskeið með Helgu Jónu
12:30 Hádegisverður í Tversted Skole
14:30-15.30 Námskeið með Helgu Jónu
15:30 Námskeiði lýkur – kaffi/te
17:00 Drykkir
18:30 Kveðjukvöldverður
Eftir kvöldverðinn hægt að eiga notalega prjónastund í Koserummet fyrir þá sem vilja
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST
08:00 Morgunsund við ströndina fyrir þær/þau morgunhressu
09:00 Morgunverður á Café Skolekøkkenet
10:00 Heimsókn og leiðsögn í Uldens Hus
12:30 Hádegisverður í Tversted Skole
13.30 Námskeiðslok með Helgu Jónu
15:30 Kaffi/te í Tversted Skole
17:00 Drykkir og kvöldverður
18:00 Brottför með rútu frá Tversted Skole
22:35 Brottför frá Billund (Icelandair)
UM DVÖLINA
UM PRJÓNANÁMSKEIÐ MEÐ HELGU JÓNU
Á námskeiðum Helgu Jónu verður unnið með góða og nytsamlega prjóntækni og fallegan frágang, sem getur sett punktinn yfir i-ið í prjónaskapnum. Það verða prjónaðar spennandi áferðir, leikið með liti.
UM HEIMSÓKNINA Í ULDENS HUS
Í heimsókninni í Uldens Hus fræðumst við um ullarvinnslu. Þar má sjá ferlið frá því að hráullin kemur inn í spunaverksmiðjuna og þar til garnið er spunnið og undið í hnykla.
Uldens Hus er í göngufæri frá Tversted Skole.
UM ISAGER VERSLUNINA
Verslunin er staðsett í Tversted Skole og er opin frá kl. 10–17 í ágúst.
Eitt kvöldið verður opið sérstaklega fyrir hópinn til kl. 18:00, þar sem þátttakendur fá sérstaka þjónustu frá hæfu starfsfólki Isager.Sem þátttakandi á námskeiðinu færðu 10% afslátt af garni í versluninni á meðan námskeiðinu stendur.
Flest herbergin eru tveggja manna herbergi og aðeins fá eru einstaklings herbergi.
Baðherbergi eru á gangi og eru sameiginleg.
Ef óskað er eftir einstaklings herbergi þarf að panta það með tölvupósti:
lb@isagerstrik.dk (takmarkað framboð).
TÍMI OG STAÐUR
KOMA: Mánudaginn 10. ágúst 2026
BROTTFÖR: Föstudaginn 14. ágúst 2026
KENNARI: Helga Jóna Þórunnardóttir
STAÐUR: Tversted Skole, Skolevej 11-13, Tversted, DK-9881 Bindslev
VERÐ: kr. 6.000 manna herbergi/ 6.900 í eins manns herbergi (athugið að aðeins eru fá eins manns herbergi í boði, vinsamlegast hafið samband við Lene: lb@isagerstrik.dk)
INNIFALIÐ Í VERÐI:
• Rútuferð til og frá flugvellinum í Billund
• Gisting í gestahúsum okkar með rúmfötum og handklæðum
• Fullt fæði (morgunverð, hádegisverð, síðdegiskaffi/te og kvöldverð)
• Prjónanámskeið með Helgu Jónu, garn innifalið í námskeiðunum
• Leiðsögn um Uldens Hus og Tversted skóla/bækistöðvar Isager
• Kaffe/te er aðgengilegt allan daginn
FERÐALAGIÐ
Flug frá Íslandi til Billund (Icelandair) og til baka er bókað á eigin kostnað en rútan er stíluð inn á þetta flug:
• KEF – BLL / 10.08.2026 / kl. 16:35 – 21:35
• BLL – KEF / 14.08.2026 / kl. 22:35 – 23:35
Ef óskað er að koma sjálf/ur til Tversted, þá vinsamlegast látið Lene vita.
HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
MUNIÐ:
-
að skoða listann frá kennaranum þegar þið pakkið. Isager sér um garnið sem notað er á námskeiðinu.
-
að taka með sundföt, góða skó fyrir gönguferðir og föt sem henta veðrinu.
-
að láta okkur vita ef þið eruð með fæðuofnæmi eða aðrar sérstakar matarþarfir.
-
að fylla út eyðublað með neyðartengiliðum og senda það á: lb@isagerstrik.dk
Handklæði og rúmföt er að finna í öllum herbergjum.
Í báðum gestahúsunum eru hárþurrkur til afnota, sem og ísskápar þar sem hægt er að geyma mat og drykki.
HELGA JÓNA THÓRUNNARDÓTTIR
Helga Jóna útskrifaðist sem handavinnukennari frá Textílseminariet í Skals árið 2005 og kennir prjón og útsaum á Skals Højskole for Design og Håndarbejde og er reglulega með námskeið hjá Isager.
Hún átti og rak Nálina Hannyrðaverslun í Reykjavík frá 2007-2011, þar sem hún bauð einnig upp á allskyns handverksnámskeið, en þó mest útsaum og prjón og hefur hún komið reglulega til Íslands með námskeið síðan hún fluttist til Danmerkur 2011.
Samhliða daglegu starfi sínu í Skals hannar Helga Jóna prjónauppskriftir, heldur fyrirlestra og kennir víða um Danmörku, á Íslandi, Japan og Marokko og fleiri stöðum. Hún skrifaði bókina Handcraft ásamt Helgu Isager en þær vinna oft saman. Auk þess hefur Helga Jóna skipulagt spennandi prjónaferðir til Íslands fyrir danska prjónara.
Helga Jóna er með vefverslun (www.strikketoj.com), þar sem þú finnur prjónauppskriftir eftir hana sjálfa ásamt kennslumyndböndum um ýmsar prjónatækni.


TVERSTED SCHOOL
Tversted School was originally built in 1954 but closed as a public school in 2015. The buildings were subsequently taken over by the yarn company Isager. Part of the former school is now used for administration and yarn storage, several of the classrooms are rented out to craft artists, and the former kindergarten has been converted into a yarn shop. Throughout the year, a variety of inspiring events and courses are held here, including knitting, weaving, spinning, papermaking, sewing, and much more.
See all events HERE

THE SCHOOL KITCHEN
During your workshops, refreshments and lunch will be served from the School Kitchen. The School Kitchen is Tversted School’s bakery and café. In addition to serving delicious refreshments to workshop participants, visitors to the school can purchase freshly baked sourdough bread, cakes, coffee, and the daily menu, which consists of local specialties and exciting salads made from seasonal vegetables.
For certain courses, full board can be arranged during your stay.
See the School Kitchen’s opening hours HERE

ACCOMMODATION
Book accommodation in connection with your course at Tversted School. Our accommodation options include the charming Guesthouse at Tversted School and the cozy Guesthouse at Skolevej 14. Both offer a relaxing atmosphere and convenient access to Tversted’s beautiful natural surroundings and a variety of activities. Rooms can be booked 3 months before the arrival date.
Book accommodation HERE
You may also like…
-
Sold Out
Guided tour of Uldens Hus (Sat. May. 23, 2026)
23. may 2026 at 10:00 - 11:00
Guided tour of Uldens Hus
kr. 80,00 Read more -
Guided tour of Uldens Hus (Sat. Jun. 6, 2026)
6. june 2026 at 10:00 - 11:00
Guided tour of Uldens Hus
kr. 80,00 Read more -
Guided tour of Uldens Hus (Sat. Jun. 27 2026)
27. june 2026 at 10:00 - 11:00
Guided tour of Uldens Hus
kr. 80,00 Read more -
FINISHES AND REFINEMENTS – workshop hosted by Helga Jóna & Helga Isager
8. august 2026 at 10:00 - 9. august 2026 at 14:00
Helga Jóna Thórunnardóttir and Helga Isager
kr. 2.950,00 Read more














