DER TALES ISLANDSK PÅ DETTE KURSUS

PRJÓNAFERÐ MEÐ HELGU JÓNU FYRIR ÍSLENSKA PRJÓNARA

Helga Jóna Thórunnardóttir

Dato

10. august 2026 kl. 16:00 - 14. august 2026 kl. 18:00

Sted

Tversted skole Skolevej 11-13, Tversted, 9881 Bindslev

Underviser

Helga Jóna (Islandsk)

Pris:

6.000 i delt værelse.

4 pladser tilbage

4 på lager

kr. 6.000,00

PRJÓNAFERÐ TIL TVERSTED MEÐ HELGU JÓNU

Komdu með í draumaveröld prjónarans, til ISAGER sem er staðsett í Tversted í Danmörku, og upplifðu fimm daga fulla af prjónaskap, náttúru og spennandi prjónasamfélagi.
Helga Jóna leiðbeinir þér í gegnum spennandi prjóntækni, þú lærir um ull í spunaverksmiðjunni Uldens Hus, borinn er fram ljúffengur matur frá skólaeldhúsinu, og þú færð að upplifa fallega náttúru Norður-Jótlands, og fyrir þá morgunhressu er sjósund á hverjum morgni.

Gist er á notalegri gistingu hjá Isager. Kennslan fer fram á íslensku, og innifalið er kennsla, námsgögn (kennsluefni er á dönsku), gisting, fullt fæði og rúta til og frá flugvellinum í Billund.

ÞRIÐJUDAGURINN

STRIKKERETREAT MED HELGA JÓNA FOR ISLANDSKE STRIKKERE

MÁNUDAGURINN 10. ÁGÚST
16:35 Brottför frá Keflavík til Billund (Icelandair)
21:45 Brottför með rútu frá Billund flugvelli
00:45 Koma til Tversted Skole og komið sér fyrir í herbergjunum.

ÞRIÐJUDAGURINN 11. ÁGÚST
08:00 Morgunsund við ströndina fyrir þær/þau morgunhressu
09:00 Morgunverður á Café Skolekøkkenet (skólaeldhúsinu)
10:00 Námskeið með Helgu Jónu
12:30 Hádegisverður í Tversted Skole
13:30 Leiðsögn um Tversted Skole og frásögn um ISAGER (Rundvisning om Tversted skole og fortælling om Isager)
14.15 Námskeið með Helgu Jónu
15:30 Kaffi/te
16:00 Gönguferð á ströndina með Helgu Jónu
18:00 Kvöldverður á Café Skolekøkkenet
Eftir kvöldverðinn hægt að eiga notalega prjónastund í Koserummet fyrir þá sem vilja

MIÐVIKUDAGURINN 12. ÁGÚST
08:00 Morgunsund við ströndina fyrir þær/þau morgunhressu
09:00 Morgunverður á Café Skolekøkkenet
10:00 Námskeið með Helgu Jónu
12:30 Hádegisverður í Tversted Skole
13:30-15.30  Námskeið með Helgu Jónu
15:30 Kaffi/te
Verslunin opin einungis fyrir hópinn frá klukkan 17-18:00
18:00 Kvöldverður á Café Skolekøkkenet
Eftir kvöldverðinn hægt að eiga notalega prjónastund í Koserummet fyrir þá sem vilja

FIMMTUDAGURINN 13. ÁGÚST

08:00 Morgunsund við ströndina fyrir þær/þau morgunhressu
09:00 Morgunverður á Café Skolekøkkenet
10:00 Námskeið með Helgu Jónu
12:30 Hádegisverður í Tversted Skole
14:30-15.30  Námskeið með Helgu Jónu
15:30 Námskeiði lýkur – kaffi/te
17:00 Drykkir
18:30 Kveðjukvöldverður
Eftir kvöldverðinn hægt að eiga notalega prjónastund í Koserummet fyrir þá sem vilja

FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST
08:00 Morgunsund við ströndina fyrir þær/þau morgunhressu
09:00 Morgunverður á Café Skolekøkkenet
10:00 Heimsókn og leiðsögn í Uldens Hus
12:30 Hádegisverður í Tversted Skole
13.30 Námskeiðslok með Helgu Jónu
15:30 Kaffi/te í Tversted Skole
17:00 Drykkir og kvöldverður
18:00 Brottför með rútu frá Tversted Skole
22:35 Brottför frá Billund (Icelandair)

UM DVÖLINA

UM PRJÓNANÁMSKEIÐ MEÐ HELGU JÓNU

Á námskeiðum Helgu Jónu verður unnið með góða og nytsamlega prjóntækni og fallegan frágang, sem getur sett punktinn yfir i-ið í prjónaskapnum. Það verða prjónaðar spennandi áferðir, leikið með liti.

UM HEIMSÓKNINA Í ULDENS HUS
Í heimsókninni í Uldens Hus fræðumst við um ullarvinnslu. Þar má sjá ferlið frá því að hráullin kemur inn í spunaverksmiðjuna og þar til garnið er spunnið og undið í hnykla.

Uldens Hus er í göngufæri frá Tversted Skole.

UM ISAGER VERSLUNINA
Verslunin er staðsett í Tversted Skole og er opin frá kl. 10–17 í ágúst.
Eitt kvöldið verður opið sérstaklega fyrir hópinn til kl. 18:00, þar sem þátttakendur fá sérstaka þjónustu frá hæfu starfsfólki Isager.Sem þátttakandi á námskeiðinu færðu 10% afslátt af garni í versluninni á meðan námskeiðinu stendur.
Flest herbergin eru tveggja manna herbergi og aðeins fá eru einstaklings herbergi.
Baðherbergi eru á gangi og eru sameiginleg.

Ef óskað er eftir einstaklings herbergi þarf að panta það með tölvupósti:
lb@isagerstrik.dk (takmarkað framboð).

TÍMI OG STAÐUR

KOMA: Mánudaginn 10. ágúst 2026
BROTTFÖR: Föstudaginn 14. ágúst 2026
KENNARI: Helga Jóna Þórunnardóttir
STAÐUR: Tversted Skole, Skolevej 11-13, Tversted, DK-9881 Bindslev
VERÐ: kr. 6.000 manna herbergi/ 6.900 í eins manns herbergi (athugið að aðeins eru fá eins manns herbergi í boði, vinsamlegast hafið samband við Lene: lb@isagerstrik.dk)

INNIFALIÐ Í VERÐI:
Rútuferð til og frá flugvellinum í Billund
• Gisting í gestahúsum okkar með rúmfötum og handklæðum
• Fullt fæði (morgunverð, hádegisverð, síðdegiskaffi/te og kvöldverð)
• Prjónanámskeið með Helgu Jónu, garn innifalið í námskeiðunum
• Leiðsögn um Uldens Hus og Tversted skóla/bækistöðvar Isager
• Kaffe/te er aðgengilegt allan daginn

FERÐALAGIÐ
Flug frá Íslandi til Billund (Icelandair) og til baka er bókað á eigin kostnað en rútan er stíluð inn á þetta flug:

• KEF – BLL / 10.08.2026 / kl. 16:35 – 21:35
• BLL – KEF / 14.08.2026 / kl. 22:35 – 23:35

Ef óskað er að koma sjálf/ur til Tversted, þá vinsamlegast látið Lene vita.

HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR

MUNIÐ:

  • að skoða listann frá kennaranum þegar þið pakkið. Isager sér um garnið sem notað er á námskeiðinu.

  • að taka með sundföt, góða skó fyrir gönguferðir og föt sem henta veðrinu.

  • að láta okkur vita ef þið eruð með fæðuofnæmi eða aðrar sérstakar matarþarfir.

  • að fylla út eyðublað með neyðartengiliðum og senda það á: lb@isagerstrik.dk

Handklæði og rúmföt  er að finna í öllum herbergjum.
Í báðum gestahúsunum eru hárþurrkur til afnota, sem og ísskápar þar sem hægt er að geyma mat og drykki.

HELGA JÓNA THÓRUNNARDÓTTIR

Helga Jóna útskrifaðist sem handavinnukennari frá Textílseminariet í Skals árið 2005 og kennir prjón og útsaum á Skals Højskole for Design og Håndarbejde og er reglulega með námskeið hjá Isager. 

Hún átti og rak Nálina Hannyrðaverslun í Reykjavík frá 2007-2011, þar sem hún bauð einnig upp á allskyns handverksnámskeið, en þó mest útsaum og prjón og hefur hún komið reglulega til Íslands með námskeið síðan hún fluttist til Danmerkur 2011.

Samhliða daglegu starfi sínu í Skals hannar Helga Jóna prjónauppskriftir, heldur fyrirlestra og kennir víða um Danmörku, á Íslandi, Japan og Marokko og fleiri stöðum. Hún skrifaði bókina Handcraft ásamt Helgu Isager en þær vinna oft saman. Auk þess hefur Helga Jóna skipulagt spennandi prjónaferðir til Íslands fyrir danska prjónara.

Helga Jóna er með vefverslun (www.strikketoj.com), þar sem þú finnur prjónauppskriftir eftir hana sjálfa ásamt kennslumyndböndum um ýmsar prjónatækni.

Tversted Skole

TVERSTED SKOLE

Tversted Skole blev oprindeligt bygget i 1954 men blev nedlagt som folkeskole i 2015. Herefter blev bygningerne overtaget af garnfirmaet Isager. En del af den gamle skole bruges til administration og garnlager, flere af klasselokalerne er lejet ud til kunsthåndværkere og den tidligere børnehave er indrettet til garnbutik. Året rundt bliver der holdt spændende arrangementer og kurser i blandt andet strikning, vævning, spinding, papirmageri, syning og meget mere.

Se alle arrangementer HER

SKOLEKØKKENET

I forbindelse med dit kursus vil der blive serveret forfriskninger og frokost fra Skolekøkkenet. Skolekøkkenet er Tversted Skoles bageri og café. Udover at servere lækre forfriskninger til kursister, kan skolens gæster blandt andet købe friskbagt surdejsbrød, kage, kaffe samt dagens menu, som består af lokale specialiteter og spændende salater af årstidens grønt.
På visse kurser kan der bestilles fuld forplejning under dit ophold.

Se Skolekøkkenets åbningstider HER

OVERNATNING

Book overnatning i forbindelse med dit kursus på Tversted Skole. Vores overnatningsmuligheder inkluderer det charmerende Gæstehus på Tversted Skole og det hyggelige Gæstehus på Skolevej 14. Begge steder byder på en afslappende atmosfære og bekvem adgang til Tversteds naturskønne omgivelser og spændende aktiviteter. Værelserne kan bookes 3 mdr. før ankomstdato.

Book overnatning HER

Du kunne også være interesseret i…